156. löggjafarþing — 76. fundur,  2. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[01:41]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Í síðustu ræðu var ég að fjalla um orkuskipti. Við gerum okkur öll grein fyrir því að orkuskiptin koma til með að verða verulega kostnaðarsöm. Þá þurfa nú útgerðirnar að hafa borð fyrir báru vegna þess að við vitum vel að það verður verulega kostnaðarsamt fyrir útgerðir að fara þennan veg. En þetta eru þau markmið sem við höfum sett okkur sem þjóð. Við erum að stefna að kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 og stefnum á 55% minni losun fyrir árið 2030.

Það voru 100.000 tunnur af olíu á hverjum degi sem skipafloti Norðurlandanna notaði fyrir nokkrum árum síðan. Það er ansi mikið. Ef við minnkum þetta um 10% er það gríðarlegur sparnaður. Það verður gríðarlegur sparnaður fyrir íslenska þjóð að fara í þessi orkuskipti á skipaflotanum. En með þeim fjárfestingum og nýsköpun í orkuskiptum þá getum við tryggt að íslenskur sjávarútvegur verði áfram í fremstu röð. Við verðum samt að tryggja ákveðna umgjörð, ákveðinn styrkleika sömuleiðis, til að sjávarútvegurinn geti sótt fram til að takast á við þessa miklu áskorun. Þetta verður gríðarleg áskorun, virðulegur forseti. Við höfum ekki tölur þess efnis, eða ég hef þær ekki, hvað við þurfum að virkja mikið t.d. til að rafvæða skipaflotann. En við gerum okkur alveg grein fyrir því að bara það að tengja hafnir með rafmagni þannig að skip geti tekið landtengingu á rafmagni er mikið verkefni. Það hefur verið gert nokkuð víða en við eigum nóg eftir hvað það varðar.

Virðulegur forseti. Það eru alltaf áskoranir á hverjum degi þegar við erum að nýta auðlindir, þegar við erum sömuleiðis að eiga við náttúruna. Það er alltaf áskorun og verkefni okkar felst í því að reyna að laga okkur að því hvernig við vinnum sem best með náttúrunni. Hluti af því stóra verkefni er að draga úr olíunotkun og fara í þessa rafvæðingu en ef fram fer sem horfir þá óttast ég það, virðulegi forseti, að sjávarútvegurinn hafi ekki það bolmagn sem við viljum að hann hafi til þess að takast á við þetta.

Ég held að það sé alveg ljóst að allir sem koma að þeirri umræðu sem hefur átt sér stað hérna undanfarna daga um veiðigjöld sjá það alveg að „eðlilegt gjald“ — hvað er eðlilegt? Við vitum það ekki enn þá. Hóflegt gjald fyrir afnot af auðlindinni er það sem við viljum sjá. En við megum aldrei ganga það langt að greinin sem við byggjum afkomu okkar á geti ekki staðið undir þeim skuldbindingum og væntingum sem við gerum til atvinnugreinarinnar.

Virðulegi forseti. Ég er bara rétt að hita upp í þessari umræðu um orkuskipti þannig að ég óska eftir því að vera settur á mælendaskrá að nýju.