dagskrártillaga.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Þessi dagskrártillaga er lögð fram á 76. fundi á 156. löggjafarþingi og varðar dagskrá 77. fundar, sem áætlað er að hefjist klukkan 10:00 að morgni 2. júlí 2025. Dagskrá 77.fundar liggur ekki fyrir þegar þessi dagskrártillaga er lögð fram. Með þessari tillögu er lagt til að dagskrá fundarins verði svohljóðandi:
1. Fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030, 264. mál, þingsályktunartillaga fjármálaráðherra. — 2. umræða.
2. Almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga (aldursviðbót, launavísitala og tölfræðiupplýsingar), 259. mál, lagafrumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra. — Framhald 2. umræðu.
3. Veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni), 351. mál, lagafrumvarp atvinnuvegaráðherra. — Framhald 2. umræðu.
4. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 187. mál, lagafrumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra. — Framhald 2. umræðu.
5. Menntasjóður námsmanna (námsstyrkir og endurgreiðslur), 254. mál, lagafrumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. — Framhald 2. umræðu.
6. Evrópska efnahagssvæðið (bókun 35), 85. mál, lagafrumvarp utanríkisráðherra. — Framhald 2. umræðu.
7. Fjölmiðlar (stuðningur við einkarekna fjölmiðla), 256. mál, lagafrumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. — Framhald 2. umræðu.
8. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, 270. mál, lagafrumvarp innviðaráðherra. — Framhald 2. umræðu.
9. Kílómetragjald á ökutæki, 123. mál, lagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra. — Framhald 2. umræðu.
10. Breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld (aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög o.fl.), 260. mál, lagafrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra. — Framhald 2. umræðu.
Fyrir hönd þingflokksformanna stjórnarandstöðu leggur Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, fram þessa dagskrártillögu, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá fundar númer 77 á 156. löggjafarþingi verði þau dagskrármál sem tilgreind eru hér að ofan.“
Undir þetta bréf ritar Bergþór Ólason. Þessi tillaga verður borin upp í upphafi þingfundar á morgun.