156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:13]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég tek undir orð þingmanns og þingflokksformanns Miðflokksins, Bergþórs Ólasonar, varðandi þá tillögu sem hann lagði fram fyrir hönd þingflokksformanna stjórnarandstöðunnar. Það eru mörg mál sem bíða hér umræðu. Þar undir eru nokkur mál sem hreinlega verður að ræða þó að það eigi kannski ekki við um allan stabbann, eins og maður segir, en það á við um nokkur þeirra. Við viljum endilega liðka til í dagskrá þingsins og ekki síst þar sem við sáum víða á samfélagsmiðlum svona neyðarkall stuðningsmanna stjórnarliða, ákall um að önnur mál yrðu rædd, þannig að við vildum undirstrika það. Dagskrárvaldið er að sjálfsögðu hjá forseta og stendur ekki á okkur að önnur mál séu rædd en við vildum undirstrika þetta með þessum hætti með því hreinlega að leggja það til.