156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:16]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vona að þingheimur geri sér grein fyrir því að hæstv. ríkisstjórn braut lög um opinber fjármál. Það finnst hæstv. ríkisstjórn fyndið, heyri ég. Það á að koma fyrst með fjármálastefnu eins fljótt og auðið er og ríkisstjórnin boðaði að það yrði gert í febrúar. Það á að ræða hana ítarlega, það á að samþykkja hana og á fjármálastefnu á síðan að byggja fjármálaáætlun. Hana á að ræða ítarlega og það á að samþykkja hana. Á grunni fjármálaáætlunar á að byggja og samþykkja fjárlög. Á þessum stutta tíma sem við höfum verið hér þá hafa ekki bara lögin verið brotin heldur eru allar þessar stóru yfirlýsingar hæstv. ríkisstjórnar um hallalaus fjárlög 2027 farnar og reyndar 2028, 2029 og 2030 ef menn setja inn í fjármálaáætlun það sem menn eru búnir að segjast ætla að setja í fjármálaáætlun og er ekki þar nú þegar. Það eru ekki öll mál, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, jafn stór. Lög um opinber fjármál eru grunnurinn að því sem við erum að vinna og það er ótækt (Forseti hringir.) að hæstv. ríkisstjórn vinni jafn ófaglega eins og raun ber vitni og það er ófært að hún sé að reyna að fela staðreyndirnar (Forseti hringir.) í ríkisfjármálunum og það er gert með núverandi dagskrá.