156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:20]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er nú sem betur fer þannig að á öllum fundum er hægt að leggja fram tillögur um dagskrá. En það er auðvitað ljóst að forseti þingsins og meiri hlutinn stjórnar þeirri dagskrá. Nú eru aðeins um tíu vikur þangað til nýtt þing hefst og nokkuð ljóst að heimurinn mun ekki leggjast á hliðina þó að einstök mál klárist ekki á þessum tíma. Hins vegar er alveg ljóst að fjármálaáætlun þarf að klárast. Fjármálaáætlun er undirstaða þess að hægt sé að leggja fram fjárlög. Fjárlagavinnan er sennilega langt komin, yfirleitt er talnagrunninum lokað um svipað leyti og fjármálaráðuneytið fer í frí um miðjan júlí. Það eru tvær vikur þangað til. Þess vegna er fullkomlega óeðlilegt að við séum ekki að ræða fjármálaáætlun þessa dagana á meðan það er ágreiningur um veiðigjald sem væri hægt að taka til hliðar og ræða (Forseti hringir.) hvort hægt væri að finna lausnir á og fara í þau mál sem augljóslega þarf að klára.