156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:21]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ef stjórnarandstaðan meinar eitthvað með því að vilja liðka fyrir þá skulum við ganga til atkvæðagreiðslu um veiðigjaldafrumvarpið núna strax á eftir og það á við um fleiri mál sem kominn er tími til að fara að greiða atkvæði um. Það er stjórnarandstaðan sem hefur tafið fyrir því að við höfum getað unnið okkar vinnu hér og það eru allir meira og minna búnir að fá nóg, ekki hvað síst fólkið úti í samfélaginu sem finnst nóg komið og vill að hlutirnir fari að ganga hér samkvæmt lýðræði. Talandi um að vilja liðka fyrir; það er kominn tími til að fara að greiða atkvæði um málið.