dagskrártillaga.
Virðulegur forseti. Mér heyrðist hv. þingflokksformaður Samfylkingar leggja þá línu hér í pontu rétt áðan að stjórnarliðar skyldu greiða atkvæði gegn þessari dagskrártillögu. Það er beinlínis gert ráð fyrir því í 77. gr. þingskapalaga að tillaga sem þessi komi fram því það blasir við nauðsyn þess að ræða það mál sem hér er lagt til að verði 1. mál á dagskrá. Hv. þm. Guðbrandur Einarsson virðist telja ófæra leið að annað mál sé 1. mál á dagskrá en veiðigjöldin. Það er ekki klók leið sé raunverulegur vilji til þess að komast áfram með þau mál sem hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson nefndi hér áðan. Við í stjórnarandstöðunni erum að reyna hér, rétt eins og þegar við lögðum það sem við gátum til til þess að mál dómsmálaráðherra kæmist hér á dagskrá fyrir rúmum mánuði síðan, að aðstoða við það að hér komist mál, (Forseti hringir.) sem er beinlínis lögbundið að sé klárað, til umræðu á grundvelli þess að vera 1. dagskrármálið og við þekkjum það að umræða um fjármálaáætlun, þegar samið er um hana, tekur alla jafna tvo daga.