156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:23]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég hef hlustað af athygli á orð hv. stjórnarþingmanna. Það er augljóst, virðulegi forseti, að þeim finnst þetta vera bara nákvæmlega ekki neitt mál. Trúverðugleiki, sjálfbærni ríkisfjármálanna skiptir bara engu máli. Það kom í ljós í umræðu í gær að hæstv. ráðherra hafði ekki hugmynd um það hvernig staðan væri á fjármálaáætluninni eftir að meiri hluti fjárlaganefndar hafi gengið þannig fram að það væri kominn halli á fjárlög 2027, þvert á loforð.

Virðulegi forseti. Eins og hér kom fram og stendur í lögunum þá þurfum við að klára fjármálaáætlun til að hægt sé að vinna fjárlög. Er þetta bara ekkert mál? (Forseti hringir.) Er hv. stjórnarþingmönnum og hæstv. ríkisstjórn nákvæmlega sama? Þetta eru lög um opinber fjármál. Þetta er bara eitthvað eins og hunda- og kattamálið fyrir hæstv. ríkisstjórn.