156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er mikið vald sem hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur er gefið þegar hún kemur hér og segir að fólkið sé búið að fá nóg, að hún geti talað fyrir fólkið í landinu. Þá væntanlega líka fyrir fólkið í þessum 26 sveitarfélögum, burðarsveitarfélögum landsbyggðarinnar. Við eigum auðvitað ekki að tala með þessum hætti. Svo koma hér þingmenn meiri hlutans upp og segja: Ef við viljum einhvern framgang í þinginu þá er það bara á okkar forsendum, þá bara haldið þið þessu áfram: Við erum með illa unnið mál í höndunum hérna, þetta fiskveiðistjórnarmál, gjaldtökumál. Það er mjög illa unnið, ítrekað hefur þurft að leiðrétta það og við getum ekki treyst þeirri niðurstöðu sem er í málinu í dag. Það þarf að vinna það betur. Við erum, virðulegur forseti, í minni hlutanum að leggja það til að hér geti þingstörf haldið áfram og á meðan þingflokksformenn geta nýtt þann tíma til að ná samningum um þinglok þá erum við tilbúin til að vera hér og reyna að afgreiða mál áfram sem þarf að vinna með. (Forseti hringir.) Við erum að reyna að nýta tímann betur, tillagan gengur út á það. Á þeim tíma geta þingflokksformenn — sem hér hafa reyndar setið á fundum fyrir helgi og eftir helgi og ítrekað verið að fresta fundum í stað þess að reyna að nýta tímann (Forseti hringir.) til að vinna betur í þessum málum. Þetta er einfaldlega okkar tillaga, (Forseti hringir.) reynum að nýta tímann betur á meðan fólk er að tala saman og reyna að ná einhverri niðurstöðu um þinglok.