dagskrártillaga.
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegur forseti. Hér hefur verið talað um fjármálaáætlun sem vissulega bíður afgreiðslu. Sú áætlun byggir m.a. á þeirri stefnu og þeim markmiðum núverandi ríkisstjórnar að innheimta sanngjörn auðlindagjöld. Það er stefna þeirra flokka sem höfðu sigur í síðustu alþingiskosningum. Annars ætla ég ekki að fara að taka þátt í orðaskaki um dagskrána en mig langar að lesa upp ágætishugleiðingu sem Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, birtir á á Facebook-síðu sinni:
„Á Íslandi ríkir sú skipan að þjóðin kýs alþingismenn. Ræðst skipting þingmanna milli flokka af úrslitum kosninga. Meiri hluti þingmanna myndar ríkisstjórn og setur þjóðinni lagafyrirmæli, þó að minnihlutinn sé andvígur þeim. Minni hlutinn hefur heimild til að andmæla fyrirætlunum meiri hlutans og gera grein fyrir ástæðum andmælanna við umræður á þinginu. Fari meiri hlutinn fram með lagafrumvarp verður það að lögum ef þingmenn meiri hlutans gefa sig ekki og samþykkja frumvarpið. Það er að mínum dómi skylda alþingismanna sem andvígir eru setningu laga, sem meiri hlutinn vill setja, að beygja sig fyrir því eftir að hafa notið málfrelsis við meðferð frumvarps á Alþingi.“
Ég ætla að hvetja þingmenn minni hlutans til að hafa þessi orð að leiðarljósi.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra og hv. þingmenn á að leita leyfis þegar haft er beint eftir öðrum og virða tímann sem hér er til ráðstöfunar.)