156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:32]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það hefur verið fróðlegt að taka sæti á hinu háa Alþingi en ég get ekki varist þeirri hugsun núna þegar liðið er fram á sumar að alþingismenn, í sinni hetjulegu baráttu fyrir hugsjónum sínum, festist í ákveðinni búblu. Ég vil vekja athygli hv. þingmanna stjórnarandstöðunnar sem tala hér seint og snemma um sérhagsmuni að það er fólk fyrir utan þennan sal; á mánudaginn bæjarstjóri Grindavíkur sem undirstrikaði þá óvissu sem fólk og fyrirtæki í Grindavík eru undir vegna tafaleikja stjórnarandstöðunnar hér á þingi varðandi afgreiðslu á mikilvægum málum sem snúa að Grindavík, eða yfirmaður Vegagerðarinnar á Vesturlandi sem gat ekki farið í kjörútboð með endurbætur á vegum fyrir þetta sumar vegna tafaleikja stjórnarandstöðunnar á þingi og afgreiðslu fjárauka III. (Forseti hringir.) Þetta eru bara tvö dæmi af mörgum. Ég höfða til ábyrgðar minni hlutans (Forseti hringir.) gagnvart veröldinni fyrir utan þennan sal, sem þetta ætti auðvitað alltaf snúast um — almannahagsmuni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)