156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:36]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég vildi aðeins koma hingað upp til að bregðast við orðum stjórnarþingmanna varðandi dagskrárvaldið. Það er alveg morgunljóst að dagskrárvaldið er í höndum forseta og meiri hlutans. Það er alveg morgunljóst að forgangsröðun stjórnarmeirihlutans er að setja veiðigjaldið fyrst á dagskrá á kostnað allra annarra mála hér í þinginu. Hér erum við að leggja til dagskrártillögu til að koma á dagskrá fjármálaáætlun sem lögum samkvæmt þarf að ræða. Hér er verið að leggja til tillögu til að liðka fyrir þingstörfum, ekki tefja fyrir málum. Það er ríkisstjórnin sem sér um það.