156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:39]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Vitlaus meiri hluti má setja vitlaus lög. Að einhverju leyti er það rétt, að öðru leyti ekki. Lýðræðið er sem betur fer mun flóknara og vandaðra fyrirbæri en það að sá sem er valdhafi hverju sinni sitji og ýti á græna takkann í sínu borði, það er vandaðra og flóknara en það, og þá segir sig sjálft að minni hlutinn hverju sinni gæti að sjálfsögðu bara verið heima hjá sér ef það væri reyndin. En ég kom hingað upp þar sem ég var hugsi þegar ég heyrði, held ég alla stjórnarliða hér í sal, segja „heyr, heyr“ eftir orð hv. þm. Dags B. Eggertssonar um að hér væri eingöngu verið að tala fyrir sérhagsmunum en ekki almannahagsmunum. Þessi þvæla hefur verið endurtekin hér örugglega þúsund sinnum og ég vil bara leyfa mér að spyrja: Er verið að segja hér að allir kjörnir fulltrúar (Forseti hringir.) þeirra 26 sveitarfélaga sem hafa einlægar áhyggjur af þessu máli — eru þau öll að tala bara fyrir sérhagsmunum og verðskulda „heyr, heyr“ stjórnarliða hér í þessum sal fyrir vikið?