156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:40]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er til hugtak sem heitir gaslýsing og, með leyfi forseta, langar mig að lesa skilgreiningu sem finna má á Vísindavefnum á því:

„Tæknin sem beitt er kallast á ensku „gaslighting“, eða gaslýsing, og er þekkt pólitískt bragð. Í henni felst að neita stanslaust allri sök, afvegaleiða, setja fram mótsagnir, ljúga upp á fólk afstöðu, hengja sig í öll aukaatriði og hanna nýja atburðarás eftir á sem hentar málstað þess sem er að verja sig.“

Ég er búin að sitja hérna og hlusta á þingmenn minni hlutans snúa öllu á hvolf. Málið er að þið eruð hreinlega í grímulausri sérhagsmunagæslu. Það sést alls staðar, fólkið í landinu sér það. Einhverjir hérna vitnuðu til Facebook og samfélagsmiðla. Þið ættuð að lesa það sem stendur undir ykkar eigin statusum ef þið viljið vitna í það. Fólkið í landinu stendur ekki með ykkur (Forseti hringir.) og það sjá allir hvað þið eruð að gera með þessu. (Forseti hringir.) Þið eruð bara orðin uppiskroppa í veiðigjöldunum og viljið fá frið fyrir þeim. Fínt. Hættið þessu bara, greiðum atkvæði. Þetta er útrætt.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að ávarpa forseta, ekki ávarpa beint aðra þingmenn.)