dagskrártillaga.
Frú forseti. Vegna þeirrar tillögu sem liggur fyrir frá minni hlutanum um að gera dagskrárbreytingu út af mikilvægi þess að koma málum áfram vil ég bregðast við með að segja að við höfum auðvitað reynt þessa leið ítrekað. Við höfum tekið hér mál eins og almannatryggingar, samning Sameinuðu þjóðanna og fleiri mikilvæg og góð mál fram fyrir röð og fengið um þær umræður. En allt kemur fyrir ekki. Málin komast einfaldlega ekki áfram. Ég vil því segja að allt tal um að vilja liðka fyrir þingstörfum hljómar ekki beinlínis trúverðugt miðað við það sem á undan er gengið. Því hvet ég stjórnarandstöðuna að halda áfram með dagskrá og hv. þm. Jón Gunnarsson að stefna þá bara að því að klára sínar 2.800 ræður sem hann hefur boðað hér um veiðigjaldið og klára þær sem allra fyrst svo við getum raunverulega haldið áfram þingstörfum.