156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:46]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Það eru vissulega vonbrigði að sjá að meiri hlutinn fellir þessa dagskrártillögu. Það liggur, held ég, öllum ljóst fyrir að fjármálaáætlun þarf að ræða. Það er verkefni sem við þurfum að ljúka. Á henni byggja fjárlög sem ríkisstjórnin kemur með eftir tíu vikur, vinnu sem er væntanlega að ljúka núna í fjármálaráðuneytinu áður en það fer í frí. Ég veit ekki hvernig verkstjórn meiri hlutans er hugsuð varðandi það að ljúka fjármálaáætlun þegar meiri hlutinn setur sífellt það mál á dagskrá þar sem augljóst er að setjast þarf niður og finna einhvers konar samtal um hvernig við ætlum að ljúka. Það liggur í augum uppi og hefur legið fyrir lengi. Sú pattstaða sem verið hefur kristallast hér í atkvæðagreiðslunni. Hún á að halda áfram.