156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að það kemur mér svolítið á óvart að enginn stjórnarliði telji skynsamlegt að ræða fjármálaáætlun hér við upphaf þessa þingfundar í ljósi þess að þegar samið er um umræðu um fjármálaáætlun, sem styttir hana umtalsvert, þá tekur umræðan alla jafna tvo þingfundadaga. Þetta er staðan sem við erum í núna í byrjun júlí. Þetta er mjög sérstakt en þessi lína var auðvitað lögð og hún heldur greinilega. En ég vil biðja virðulegan forseta að íhuga alvarlega, þó að það verði ekki á þessum fundi í dag, að taka fjármálaáætlun til umræðu því að við erum að stefna í miklar ógöngur ef fram heldur sem horfir, að það eigi að fresta lögbundnu máli sem tekur tvo þingfundadaga í umræðu þegar samið er um umræðuna til að takmarka hana, fækka stundum sem til hennar fara. Af hverju skyldi það vera? (Forseti hringir.) (Gripið fram í.) Út af efnisatriðum fjármálaáætlunar. Hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson (Forseti hringir.) hefur verið á þingi áður og rætt fjármálaáætlun sem ég held að hafi verið komin til á þeim tíma sem hv. þingmaður sat hér í fyrra skiptið. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Ég styð auðvitað þessa dagskrártillögu.