dagskrártillaga.
Virðulegi forseti. Þegar maður lítur yfir atkvæðatöfluna þá kemur það mér satt best að segja, miðað við öll þau orð sem hér hafa fallið, verulega á óvart hvað það er lítill stuðningur við dagskrártillöguna og fá græn ljós á töflunni. Það segir kannski allt um stöðuna sem Alþingi Íslendinga er í. Fjármálaáætlun verður að sjálfsögðu rædd en það er forgangsröðun, af því að það var nefnt hérna, það er forgangsröðun stjórnarandstöðunnar að tefja hér mál, ekki bara í veiðigjöldunum heldur öðru líka. Það er búið að vera nánast stöðugt málþóf meira og minna í vetur. Það er bara þannig. Við vitum það öll sem sitjum hér í þessum sal. Það er forgangsröðunin sem birtist hér í þingsal. Það hefur síðan áhrif á öll önnur mál og gerir það að verkum að það eru sárafáir á bak við grænu ljósin hér á töflunni. Það eru allir orðnir þreyttir. Það vilja allir klára þetta. En að hér sé talað eins og hér hafi ekki verið samtöl (Forseti hringir.) um að ljúka þingi — hér hafa menn verið langt inn í nætur dag eftir dag eftir dag, helgar, lengi og skýringin sem blasir við okkur á töflunum er að það eru einhverjir níu eða tíu stjórnarandstæðingar sem mæta til að styðja eigin dagskrártillögu. (Forseti hringir.) Þetta finnst mér afskaplega afhjúpandi fyrir ógöngurnar sem Alþingi Íslendinga er í. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (ÞSv): Forseti ítrekar beiðni sína til hv. þingmanna að virða ræðutímann og halda sig við það efni sem liðurinn heyrir undir og hér var verið að gera grein fyrir atkvæði sínu.)