156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:52]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Afsakaðu þetta, frú forseti. Ég var bara á mjög góðri leið með að semja um þetta frumvarp, ég ákvað að nota tímann eins og ég mögulega gæti til þess og vonandi myndi það leiða til þess að þessar umræður styttust eitthvað.

En það sem ég var að ræða um í minni síðustu ræðu voru áhrif á sjávarbyggðir og fór ágætlega yfir það. Þó að hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, hefði kosið að taka ekki þátt í þessari umræðu, sem hefði verið vel, þá var alla vega þetta sem ég ræddi hér um og hann hlustaði á.

Það sem mig langar til að ræða, frú forseti, núna er hvernig við reiknum út veiðigjaldið. Ég verð að segja það, frú forseti, að það voru mér ákveðin vonbrigði þegar það kom að mínu mati mjög málefnaleg fyrirspurn hérna í þinginu í gær í óundirbúnum fyrirspurnatíma, þegar hv. þm. Bergþór Ólason spurði hæstv. atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínu Friðriksson, hvort sú staða væri hreinlega ekki uppi, miðað við forsendurnar eins og þær væru gefnar í frumvarpinu, að mögulega væri verið að reikna veiðigjaldið af hærri prósentu en 33%. Það voru ákveðin vonbrigði að ráðherra skyldi afgreiða það sem hreina og klára dellu. Ég man ekki betur, frú forseti, en að þegar verið var að ræða frumvarpið eftir það var nýlega lagt fram og var verið að fara í gegnum umsagnir þá hefði komið upp sú spurning hvort þessi breyting, að umreikna verðlagsstofuverðið yfir í markaðsverðið, hvort það hefði ekki áhrif á veiðigjaldið hjá öðrum tegundum þegar augljóslega væri verið að ofmeta hlutdeild t.d. þorsks með því að nota önnur verð en raunverulega voru notuð í viðskiptunum, hvort það hefði þá ekki í rauninni áhrif á útreikning á veiðigjaldi fyrir aðrar tegundir. Ég ætla að leyfa mér að segja að þetta er sannarlega málefnaleg fyrirspurn.

Fyrst ráðuneytið kýs að nota ekki þessi markaðsverð við að reikna út hlutdeild í kostnaði til þess væntanlega að losna við breytinguna á veiðigjaldinu til hækkunar í öðrum fisktegundum þá finnst mér að ráðherra hefði að sjálfsögðu átt að nefna það hér og fara yfir það með hvaða hætti þetta væri þá reiknað og af hverju menn hefðu þá valið að nýta eins og um væri að ræða þessi verðlagsstofuverð. Ráðherra einfaldlega ákvað að svara því ekki. Mér finnst það miður því að þarna hefði hann þá í rauninni getað útskýrt að það væri ekki verið að nota 33% hlutfall af veiðigjaldinu heldur er þetta í raun hærri prósenta. Mér fannst ráðherrann skauta algjörlega fram hjá þessu og ég vænti þess að ráðherra verði nú eftir sem áður þýfgaður um betri svör eða frekari svör en þarna komu fram og ég hlakka til að heyra þau.