156. löggjafarþing — 77. fundur,  2. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:57]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég var að hugsa um að nota þennan ræðustúf í að fjalla aðeins um í hvaða stöðu við erum hérna. Við erum komin fram í 2. júlí, það hafa verið ágætisþreifingar á milli þingflokksformanna um að ljúka hér fjölda mála og út af stendur að ná einhverju samkomulagi um þetta mál. Ég hef bent á og við í minni hlutanum mörg hver farið vel yfir þær umsagnir sem eru að berast frá fólki, sveitarfélögum, tæknifyrirtækjum, nýsköpunarfyrirtækjum, sjávarútvegsfyrirtækjum eðlilega, verkalýðshreyfingunni, sem vara ríkisstjórnina við að fara svona bratt í að hækka veiðigjöld. Þá hlýtur það að geta komið til skoðunar hjá öllu skynsömu, yfirveguðu fólki, til þess bæði að ljúka þessu máli á skynsamlegan hátt, ná fram markmiðum ríkisstjórnarinnar um hækkuð veiðigjöld, að gera það í skrefum.

Við höfum bent á að í forsendunum séu faldir stærstu gallarnir í þessu máli, það sé einfaldlega ekki hugsað nægjanlega fyrir og róið fyrir allar víkur, ekki nægilega hreinlega vandað til verka og hættan einfaldlega sú, eins og hefur verið bent á varðandi tengingu við norskan markað að þar standist ekki þau alþjóðlegu viðmið sem þar hefur verið farið fram á og hættan sé í raun og veru á að þessi skattlagning verði dæmd ólögmæt af dómstólum. Ríkisstjórnin segir: Við ætlum að bera ábyrgð á því. Gott og vel. En væri ekki skynsamlegra að reyna að ná samkomulagi um þetta mál með því að fara varlegar af stað, ná fram markmiðunum um hækkuð veiðigjöld og setjast niður og leysa það og geta farið í umræðu um fjármálaáætlun?

Nú heyrðist mér hér í umræðu einhvers stjórnarliða í morgun því haldið fram að ein af forsendum fyrir því að fjármálaáætlun stæðist væri það að klára þetta mál og fá þannig þessar tekjur. Ég held að svo sé ekki. Ég held að það standi ekki í fjármálaáætluninni. Það eru ekki breytingartillögur hjá meiri hlutanum við afgreiðslu þess máls þar sem er búið að setja inn 8 milljarða. Það er ekki forsenda fyrir þeirri uppbyggingu sem ríkisstjórnin hefur talað um í innviði. Ég held að það megi halda því fram með sanngirni að breytingin á kílómetragjaldinu muni skila ríkissjóði um 20 milljörðum meira á tímabili fjármálaáætlunar heldur en ríkisstjórnin hefur lýst yfir að hún ætli að setja í innviðauppbyggingu, vegi og samgöngur og slíkt, sem er ekki gott vegna þess að þeir fjármunir ættu auðvitað að fara allir til þeirrar uppbyggingar. Þannig að það getur ekki verið þess vegna sem ríkisstjórnin telji að það þurfi að klára veiðigjöldin á sinn hátt til að standast þær kröfur fjármálaáætlunar. Það hlýtur að liggja eitthvað annað að baki.

Auðvitað hafa ríkisstjórnarforystukonur lýst því yfir, sumar hverjar í það minnsta og helst í útlöndum, að til standi að fara í verulega aukin varnartengd útgjöld, allt að 70 milljarða á ári sem veiðigjöldin munu þá náttúrlega verða frekar lítil upp í, reyndar ekki fyrr en 2035. Ég held að við í þessum þingsal munum styðja það að við munum setja aukna fjármuni í að vera betur stödd varnar- og öryggislega, ekki síst er varðar Landhelgisgæsluna og lögregluna og slíkan viðbúnað sem við þurfum að vera sem fullgildir bandamenn í NATO. En það hlýtur að vera eitthvað annað sem liggur að baki hjá ríkisstjórninni að leggja svona gríðarlega áherslu á að það sé ekki hægt að setjast niður og finna samkomulag á grundvelli þeirra hugmynda sem m.a. hafa komið frá sveitarfélögunum 26 um að gera þetta í skrefum. Ég veit ekki annað en að slík samtöl hafi átt sér stað við ríkisstjórnina og þeim jafnvel verið tekið bara nokkuð vel. En síðan koma engar tillögur hér inn til okkar í minni hlutanum um að það sé verið á þeirri vegferð í raun og veru. Það er bara haldið áfram við að knýja þetta í gegn alveg sama hvað, á kostnað allra annarra mála og á kostnað þess að hér sé hægt að taka eðlilega umræðu, m.a. um fjármálaáætlun, sem er auðvitað lykilmál ríkisstjórnar á hverju vori, undirstaða þess að hægt sé að leggja fram fjárlög að hausti.