fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Hér er á ferðinni náttúrlega gríðarlega mikilvægt mál. Þetta á sér rót sína í lögum sem tóku gildi í byrjun árs 2016, lögum um opinber fjármál. Það sem vekur athygli mína er þetta: Núna er 3. júlí og það er enn ein staðfestingin á því að við erum ekki að fara að lögum um opinber fjármál. Ríkisstjórnin tók við í desember og mín fyrsta spurning er þessi: Af hverju var ekki farið að lögum um opinber fjármál? Spurning númer tvö: Nú liggur fyrir að það markmið ríkisstjórnarinnar, sem var kynnt hérna með mikilli flugeldasýningu, um að það yrðu hallalaus fjárlög 2027 verður auðvitað ekki. En þegar maður skoðar 2028 sem var 2,9 milljarðar og 2029 sem var 9,1 og 2030 sem var 20,8, þá er ljóst að það eru engar líkur á að það gerist vegna þess að menn sleppa því að setja inn útgjöld, sem hv. þingmaður fór vel yfir. Hann nefndi t.d. töluna 77 milljarða, ef við tökum bara varnarmálin. Það er ekki króna um það í þessari áætlun, ekki króna. Ég spyr: (Forseti hringir.) Af hverju setja menn ekki útgjöld sem er búið að samþykkja, búið að kynna, og það eru ekki bara varnarmálin, inn í þessa áætlun?