156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Ég tek undir með honum að það er 3. júlí. Ég hins vegar tek ekki undir tal um það að ekki sé farið að lögum um opinber fjármál. Stefnan og áætlunin komu fram á sviplíkum tíma. Það tengist tímasetningu kosninga frekar en ýmsu öðru og sjálfsagt að huga að því við samþykkt þessara mála að þau verði samþykkt í réttri röð.

Varðandi varnarmálin er ekki alveg nákvæmt að framlög til þeirra hækki ekki í áætluninni. Það gera þau sannarlega en ekki að því marki sem stefnt er að innan tíu ára. Sú áætlanagerð er hins vegar eftir og eðlilegt að það komi til kasta þingsins þegar þær áætlanir liggja fullbúnar fyrir og eins og áður segir þá hnykkti meiri hlutinn á því að það væri mikilvægt að haft yrði gott samráð við Alþingi varðandi þá stefnumörkun.