fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Lög eru ekki þannig að þú getir bara ákveðið eitthvað. Það stendur í lögunum að það á að koma með fjármálastefnu eins fljótt og auðið er og hæstv. fjármálaráðherra sagði að hann ætlaði að koma með hana í febrúar. Hann kom með hana í apríl. Við eigum að samþykkja fjármálastefnuna, það stendur í lögunum, og á grunni fjármálastefnunnar á að byggja fjármálaáætlun sem á síðan að samþykkja og síðan eiga fjárlögin að byggja á því. Þetta bara stendur í lögunum.
Hv. þingmaður segir að ástæðan fyrir því að það sé ekki neitt í varnarmálum þarna inni, ekki nein útgjöld, sé að þau séu ekki útfærð. Það er ekkert útfært í þessu. Hv. þingmaður vísaði í 107 milljarða hagræðingaraðgerð. Hún er ekkert útfærð, ekki í neinum málaflokki, engu málefnasviði. Þannig að við erum hér að tala um það að ríkisstjórnin vitandi vits fer ekki að lögum um opinber fjármál og sömuleiðis er ekki með útgjöld (Forseti hringir.) sem hv. þingmaður segir að séu 77 milljarðar á ári. Það er ekki neitt af því þarna inni.