156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:36]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirtaksyfirferð yfir meirihlutaálit um fjármálaáætlun. Ég ætla að segja að það svo sem kom mér ekkert á óvart í ræðu hv. þingmanns en það sem hefur komið á óvart hins vegar er áætlunin sjálf og sá ferill sem hún hefur farið í. Það er kannski bara ágætt að minna hv. þingheim á hvernig fyrri umræða um fjármálaáætlun fór, talandi um hvort hún standist lög um opinber fjármál, þar sem umræðan var um markmið og mælikvarða sem var lofað og aldrei komu og eru ekki komnir enn, þó að það segi alveg skýrt í lögunum að þeir eigi að fylgja með. Við skulum halda því til haga.

En spurningin mín, af því að ég er runninn út á tíma hérna, fyrsta spurningin er: Eru ekki bara allar forsendur í þessari áætlun (Forseti hringir.) brotnar miðað við þau auknu útgjöld sem eru fyrirséð (Forseti hringir.) á tímabilinu og hv. þingmaður fór hér yfir í framsögu sinni? Það er alveg ljóst (Forseti hringir.) að það stendur ekki steinn yfir steini í þessu.