156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir ágæta spurningu. Stutta svarið: Nei, það er ekki þannig að allar forsendur séu brostnar. Þvert á móti má segja að fyrstu vísbendingar á þessu ári, eins og við sáum í umræðunni um fjárauka III svokallaðan, eru um ákveðinn afkomubata miðað við forsendur fjárlaga á þessu ári. Við erum líka með þessari áætlun að leggja upp í hagvaxtarsókn með innviðafjárfestingum, bæði tengt samgöngumálum og orkumálum og annars sem styður við bæði skammtíma- og langtímahagvöxt. Ég vil þó vekja athygli á því að að því leyti tek ég undir að áhættugreiningin og áhættumatið sem fylgir áætluninni dregur auðvitað fram að ytra umhverfið er umhugsunarvert, hugsanleg og í raun raunveruleg tollastríð sem eru í gangi í heiminum og aðrir ytri þættir sem geta haft veruleg áhrif á ýmsar forsendur. Ég vil m.a. vekja athygli (Forseti hringir.) á nýbirtri greiningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á þessum ytri þáttum og hvaða áhrif þeir gætu (Forseti hringir.) haft hér á Íslandi.