fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er allt of stuttur tími í þessi andsvör, en það er nú þannig. Það sem ég er að tala um hér varðandi forsendur þessa frumvarps er, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom inn á áðan, að þessi útgjaldaaukning sem boðuð er til varnarmála er ekki hér inni. Hún verður væntanlega einhver til ársins 2030, umfram það sem er í áætluninni. Ég held að það liggi fyrir. Það hlýtur að liggja fyrir, hvar sem hún verður síðan í henni. Væntanlega erum við að taka hér inn jöfnunarframlag lífeyrissjóða sem er einhverjir 4 eða 5 milljarðar og þessir 107 milljarðar sem eru óútfærðir og eru algjörlega fugl í skógi en ekki í hendi. Maður spyr sig: Bara þessir þrír punktar, plús öll óvissan varðandi stöðuna í alþjóðasamhengi og í tollamálum og annað sýna að það er alveg ljóst (Forseti hringir.) að tekjuforsendurnar og forsendurnar hérna fyrir því að vera með 6 milljarða hagnað í áætluninni 2028 (Forseti hringir.) — þetta er bara ofboðslega veikt. Þetta er rosalega veikt. Það eru ofboðslega margir þættir þarna sem þurfa ganga upp (Forseti hringir.) svo þessi áætlun eigi að ganga eftir.