156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir ýmisleg í því að ytra umhverfið er eins og það er og það er dregið býsna vel fram bæði í áhættugreiningu frumvarpsins og í greiningum ytri aðila sem birst hafa nýlega. En þeim ber þó saman um að áætlunin sé vel fram sett, traust og stefni algerlega í rétta átt varðandi þau markmið sem koma fram í henni og ég var að tiltaka hér. Við erum að fást við hvort tveggja í senn, annars vegar að ná stjórn á verðbólgu og vöxtum og hins vegar að styðja við vöxt til bæði skamms og lengri tíma. Það er alltaf dálítil jafnvægislist í okkar litla hagkerfi en áætlunin gefur góðar vonir, og áformin um öfluga innviðafjárfestingu ekki síst, um að þetta muni okkur takast þannig að það verði sómi að fyrir okkur öll.