fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. framsögumanni nefndarálits meiri hluta fyrir framsöguna. Ég vil fá byrja á útgjöldum, sem hefur verið komið aðeins inn á í fyrri andsvörum, sem ekki eru tilgreind í fjármálaáætlun, svo sem útgjöld til varnarmála sem hæstv. ráðherrar sem þar hluta um hafa tjáð sig um. Mig langar að spyrja hv. framsögumann hvaða útgjöld helst það eru sem eru afleidd af málum sem eru í þingmálaskrá eða stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar eða samstarfssamningi, ég man nú ekki hvernig það er orðað, sem ekki eru inni í þessu plaggi eins og það stendur núna. Sömuleiðis hvaða skatta- og gjaldahækkanir, aðhaldsaðgerðir á tekjuhlið held ég að Samfylkingin kalli þetta, áform eru uppi um sem ekki eru komnar í áætlunina eins og hún liggur fyrir núna, annaðhvort frá ráðherra eða í nefndaráliti hv. meiri hluta.