156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Fjármálaáætlun stendur einfaldlega fyrir sínu og bregður upp býsna skýrri mynd bæði af tekju- og gjaldahlið þess sem við er að fást. Áætlunin um auknar fjárfestingar í varnarmálum er ekki nema að hluta til inn í áætluninni eins og þekkt er. Það er nýlega afstaðinn leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í Haag (Gripið fram í: … fleira. )og það segir í nefndarálitinu að skuldbindingin sem nær til Íslands gæti náð til sviða svo sem almannavarna, heilbrigðisþjónustu, Landhelgisgæslu, lögreglu, samfélagslegra innviða og er tengd viðbragðsaðilum, samgöngum, flugvöllum og höfnum. Varðandi aðra þætti þá á eftir að útfæra fyllilega innviðafélagið sem á að ráðast í samgöngubætur um land allt og það mun koma til kasta Alþingis væntanlega næsta haust (Forseti hringir.) og ég bara fagna því að það eigi að ganga svo rösklega til verks.