fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er margt í mörgu og margt sem liggur ekki fyrir greinilega. Það er ágætt að það liggi fyrir að þessi fyrsta fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sé til þess að gera gloppótt hvað afleidd áhrif frumvarpa og stefnumarkandi ákvarðana varðar. Mig langar í seinna andsvari, af því að tíminn er stuttur, ítreka spurningu mína varðandi áform um hækkaðar tekjur. Hv. þingmaður kom inn á gjaldahlutann, en eru áform um hækkaðar tekjur til viðbótar við það sem birtist þarna út frá samstarfssamningi ríkisstjórnarinnar eða þingmála sem ekki hafa verið samþykkt?
Ég veitti því athygli að hv. þingmaður talaði hér áðan um hækkun veiðigjalda sem Samfylkingin hefur forðast eins og heitan eldinn og Viðreisnarfulltrúar sömuleiðis að tala um, heldur hefur verið talað um leiðréttingu. Er einhver stefnubreyting í því fólgin að fara að tala um hækkun veiðigjalda en ekki leiðréttingu út frá sjónarmiðum meiri hluta hv. fjárlaganefndar?