156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:46]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir draumaspurningu. Leiðrétting veiðigjalda felur vissulega í sér hækkun þeirra. Þegar þessi umræða stóð sem hæst fyrir 15 árum var talað um að það væri sanngirnismál og eðlilegt að þjóðin fengi þriðjung, einungis þriðjung, af auðlindarentunni. Í samantekt Auðlindarinnar okkar, sem var unnin af síðustu ríkisstjórn og sjávarútveginum, kemur fram að að meðaltali frá 2012 hafi þjóðin aðeins fengið 16–18% af þessari auðlindarentu. Nú á að leiðrétta það, ekki upp í 50%, upp í þennan þriðjung. Það er sanngjarnt, það er rétt, en það auðvitað felur í sér hækkun, sanngjarna hækkun. Eðlilega leiðréttingu.