fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka ágæta spurningu þingmannsins. Svarið er nei. Það að gera sérstaklega grein fyrir þessu, bæði inni í lögum um opinber fjármál, inni í fjármálastefnu og núna fjármálaáætlun er beinlínis til marks um festu. Mér datt ekki í hug að gagnrýna síðustu ríkisstjórn fyrir einhver lausatök að taka Grindavík út fyrir sviga. Mér finnst það bara skynsamlegt og eðlilegt þegar um eldsumbrot er að ræða og eins varðandi heimsfaraldur kórónuveiru. Það eru ekki lausatök að horfast í augu við það að við þurfum að verja meira til varnartengdra mála. Það er eðlilegt að gera sérstaklega grein fyrir því. Það hafa ríki Evrópu gert með nýjum samþykktum varðandi fjármálareglur þar og eðlilegt að við gerum slíkt hið sama hér á Íslandi.