156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:49]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er stuttur tími. 2035 er áætlað að þetta sé komið upp í 1,5%. Það er talað um að kannski 30–40 milljarðar séu þegar komnir í gegnum annað, þannig að við erum kannski að auka um 3–4 milljarða á ári. Ég myndi aldrei bera það saman við Grindavík á síðasta ári, 80 milljarða. Aldrei bera það saman við Covid, þar sem hafa verið svona 500 milljarðar árin 2020 og 2021 samtals, 500 milljarðar. Maður ber það ekki saman við 3–4 milljarða á ári til næstu tíu ára í ríkisfjármálum varðandi þetta. Þetta eru lausatök. Þetta á að vera hluti af aga og festu.

Síðan langar mig að spyrja hv. þingmann varðandi almannatryggingamálið og vísitöluna, að festa við launavísitölu, og varðandi lög um opinber fjármál og þessa nálgun að setja raunverulega 20% fjárlaganna á sjálfstýringu: Hvernig kemur það til móts við aga og festu í ríkisfjármálunum? Hvernig skilgreinir ríkisstjórnin það og meiri hlutinn að það sé agi og festa sem tengist því að setja 20% fjárlaganna á sjálfstýringu?