156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[10:52]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Það er þungt að fara hér í stólinn að þessu sinni vegna þess að það eitt og sér að við séum að ræða þetta hér 3. júlí er grafalvarlegt mál. Það er grafalvarlegt mál að við séum með ríkisstjórn í landinu sem finnst fullkomlega eðlilegt að fara ekki að lögum um opinber fjármál. Þið heyrðuð svör hv. þm. Dags B. Eggertssonar áðan þegar ég bar þetta upp á hann og spurði: Af hverju? Þá sagði hv. þingmaður að hann túlkaði þetta ekkert þannig. Hann bara túlkar þetta ekki þannig.

Lög eru lög, virðulegi forseti. Það hafa allir Íslendingar og reyndar allur heimurinn aðgang að lögum um opinber fjármál. Það getur hver sem er flett þessu upp, hver sem er, og það segir skýrt í lögunum að það á að koma með fjármálastefnu eins fljótt og auðið er. Hæstv. fjármálaráðherra sagði: Ég ætla að koma með hana í febrúar. Ríkisstjórnin tók við í desember. Og af hverju er þetta, virðulegur forseti? Er þetta eitthvað bara að gamni okkar af því að við höfum ekkert annað að gera? Nei, þetta er til komið vegna þess að það var algjör sátt á Alþingi Íslendinga, meðal allra flokka, jafn ólíkir og þeir voru, um það að við ætluðum að vera með eins góðan ramma og mögulegt væri utan um umgjörðina um opinber fjármál. Allir hv. þingmenn á þinginu 2015 greiddu atkvæði með þeim lögum. Allir hv. þingmenn sem tóku til máls, og þeir voru margir og það var mikil umræða í hv. fjárlaganefnd sem ég var í þá, voru sammála um að það voru veikleikar í þeirri umgjörð sem við vorum með sem við vildum bæta úr. Allir hv. þingmenn voru meðvitaðir um það að við vorum ekki að búa til hið fullkomna tæki þegar kom að opinberum fjármálum. Allir hv. þingmenn voru meðvitaðir um það að við þyrftum að þróa þetta tæki og gera það betra. En það hvarflaði ekki að neinum hv. þingmanni á þeim tíma eða þeim þingmönnum sem hafa verið eftir það að þetta væri eitthvað sem skipti litlu máli, væri aukaatriði og menn gætu bara farið með það að vild þó svo að það sé alveg skýrt í lögunum hvað á að gera.

Aftur, virðulegi forseti, þá sagði hæstv. ráðherra fjármála: Ég ætla að koma með stefnuna í febrúar. Við hefðum átt að ræða fjármálastefnuna ítarlega í febrúar og samþykkja og á grunni fjármálastefnunnar hefði síðan ríkisstjórnin samkvæmt lögum átt að koma með fjármálaáætlun þegar við værum búin að ræða hana ítarlega, bæði hér í þingsal en þó ekki síður í nefnd. Ég vek athygli á því að hæstv. ríkisstjórn er búin að sýna það í verki og orði að stefna hennar er að ræða ekki mál ítarlega í þingnefndum. Ég fullyrði það, ég er búinn að vera hér síðan 2003, að ég hef aldrei séð svona vinnubrögð, aldrei. Ég hef aldrei séð að það sé almenn regla að það sé slegist um það hér í þingsalnum að fá gesti fyrir hv. þingnefndir. Þetta er nýbreytni og þetta er slík afturför að hún mun hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar í för með sér, gríðarlega alvarlegar afleiðingar. Ég fullyrði það.

Þegar er búið að samþykkja fjármálaáætlun þá á ríkisstjórnin að taka fjármálaáætlunina og á grunni hennar á að samþykkja fjárlög eða semja og síðan samþykkja. Við erum núna 3. júlí loksins að ræða fjármálaáætlun sem kom inn í þingið í apríl, á sama tíma og fjármálastefnan sem gerði það t.d. að verkum að það komu eiginlega engar umsagnir um fjármálastefnuna, af því að það sá enginn tilgang í því vegna þess að þetta kom á sama tíma. Aftur ítreka ég að samkvæmt lögunum á að koma með fjármálastefnu eins fljótt og auðið er. Það á að fara yfir hana, ræða hana, samþykkja hana og á grunni fjármálastefnunnar á ríkisstjórnin að semja fjármálaáætlun.

Það eru viðsjárverðir tímar í heiminum. Það er ágætlega greint í fjármálastefnunni, svona helstu áskoranirnar sem eru stórar, en það er hins vegar ekkert í fjármálastefnunni og því síður í fjármálaáætluninni sem tekur mið af þessum viðsjárverðu tímum. Ef maður les kaflann í fjármálastefnunni þar sem er sérstaklega tilgreint að við þurfum að búa okkur undir það sem vonandi verður ekki, einhvers konar annað áfall — vonandi verður það ekki en því miður er þannig ástand í heiminum að það er margt sem bendir til þess — þá er ekkert sem kemur síðan í kjölfarið sem undirbýr okkur undir slíkt.

Virðulegi forseti. Nú koma hv. stjórnarþingmenn og þeir tala eins og þeir séu einhverjir frelsarar, þetta hafi allt verið algerlega ómögulegt og síðasta ríkisstjórn hafi bara eytt og sóað og það er vægast sagt ábyrgðarlaus málflutningur. Ég vek athygli á því að á undanförnum árum höfum við tekist á við gríðarlega stór verkefni. Heimsfaraldurinn væri nú gott að gera nákvæmlega upp í kostnaði en við erum að tala um kostnað upp á alla vega 300 milljarða, hugsanlega 500 milljarða sem hafa farið í það. 80 milljarðar fóru í Grindavík en þá er þessu að því er virðist lokið. Til að setja eitthvað í samhengi var það bara Grindavík sem skýrir að öllu leyti að afkoma 2024 var lakari en árið á undan, eins og reiknað var með. Seðlabankastjóri hefur sagt opinberlega að vaxtalækkunarferlið frestaðist um 6–12 mánuði út af Grindavík, 6–12 mánuði. Ég vek athygli á því, virðulegi forseti, ef einhver kemur hér og segir að síðasta ríkisstjórn hafi gert of mikið í málefnum Grindavíkur að það var krafa stjórnarandstöðunnar þá að gera enn meira.

Mannfjöldinn jókst um 20% á þessum tíma, sem er eitt og sér bara mikið verkefni. Síðan voru líka hlutir sem eru kannski ekki stórir í þessu samhengi en eru samt stórir. Ég held að framlög til húsnæðismála hafa hækkað um 7 milljarða í tengslum við kjarasamninga. Það er ekki gert ráð fyrir áframhaldandi slíkum stuðningi en ég heyrði á hv. framsögumanni meiri hlutans að það var gerður fyrirvari við það, það þyrfti nú að setja meira áfram í húsnæðismálin. Vandinn þar er náttúrlega fyrst og fremst annars staðar sem kemur hins vegar niður á þjóðinni. Þá er það lóðaskortur í Reykjavík. Þar hafa menn svo sannarlega verið að þráast við að skipuleggja ný hverfi en fara þess í stað dýrar leiðir með þéttingu byggðar sem hefur ekki bara áhrif á húsnæðiskostnað í Reykjavík, það hefur áhrif á efnahagsmálin á Íslandi. Ég var mjög ánægður með hvernig hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson talaði fyrir kosningar um þessi mál því að hann benti á hið augljósa, að þarna værum við að fara leiðir sem kostuðu almenning mikið, kostuðu þá sem ætluðu að kaupa sína fyrstu íbúð mikið og hefðu neikvæð áhrif á efnahagsmálin og sérstaklega á verðbólguna.

Við erum búin að ná gríðarlegum árangri í því að spara í útlendingamálum. Hér er hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir sem á svo sannarlega sinn þátt í því. Þarna munar tugum milljarða. Eftir á að hyggja eru, held ég, öll sammála um að það hefði átt að fara fyrr og betur í það. En það er kaldhæðnislegt, af því að nú tala menn um málþóf og annað slíkt, að þeir flokkar sem stunduðu það þegar menn voru að reyna að koma þeim úrbótum í gegn eru nú í ríkisstjórn, og þá er ég að tala um sérstaklega Samfylkinguna og Viðreisn.

Fjármálaráð bendir á að þessi áætlun og stefna sé með tvær sviðsmyndir, bjartsýna og mjög bjartsýna. Það er mikil bjartsýni að vera með sviðsmyndir sem eru bjartsýnar og mjög bjartsýnar við þessar aðstæður. Ríkisstjórnin hefur á þessum tíma sem hún hefur verið grafið undan stöðugleika í efnahagsmálum með lagasetningu og auknum útgjöldum. Við heyrðum hér orðaskipti hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar og hv. þm. Dags B. Eggertssonar þegar hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson spurði eðlilega út í sérstaklega fyrirætlanir og frumvarp um að greiðslur almannatrygginga yrðu tengdar við launavísitölu eða verðlagsvísitölu, eftir því hvor væri hærri. Það er ekki gert ráð fyrir útgjöldunum sem munu verða vegna þessa í þessari áætlun. Nú vek ég athygli á því að annars vegar er talað um, og ég var alveg sammála hv. þm. Degi B. Eggertssyni þegar hann fór að tala um viðsjárverða tíma og að við þyrftum að fara varlega, en síðan kemur hæstv. ríkisstjórn með áætlanir sem fjármálaráð segir að sé með tvær sviðsmyndir, bjartsýna og mjög bjartsýna.

Virðulegi forseti. Getur einhver séð að þarna fari saman hljóð og mynd? Getur einhver sé það? Sömuleiðis með víxlverkunarfrumvarpið sem mun lækka lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga með lægstu lífeyrisréttindin. Það mun líka hafa neikvæð áhrif á þær breytingar sem síðasta ríkisstjórn beitti sér fyrir, að vísu var það með breiðum stuðningi, ég held að það hafi bara verið Flokkur fólksins sem greiddi atkvæði gegn því, en það auðvitað stórbætir afkomu þeirra sem eru á örorku og eru á bótum. En hugmyndin á bak við það er svo sannarlega sú, eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson benti á, að auka virkni á vinnumarkaði.

Útgjöldin hafa aukist mjög. Ef við tölum um útgjöldin frá 2017–2025 þá hefur þetta fyrst og fremst verið heilbrigðisþjónusta, fjölskyldumál, samgöngumál, örorkumál, málefni fatlaðs fólks og til eldri borgara sömuleiðis ef menn skoða það. Við verðum að ná árangri í þessari vegferð sem við erum á. Við viljum öll gera vel við þá sem þurfa á styrk okkar að halda en við viljum líka öll sjá þjóðfélag þar sem flestir eru virkir á vinnumarkaði. Það er hagur allra.

Við höfum rætt eitt skattahækkunarfrumvarpa ríkisstjórnarinnar og af því að hv. þingmaður og framsögumaður, Dagur B. Eggertsson, talaði um mikilvægi þess að auka verðmætasköpun þá er einn gallinn við það frumvarp að það er svo illa unnið að menn skoða ekki þau áhrif sem þessar skattahækkanir hafa. Það er ekki þannig, þrátt fyrir að því miður leyfi ríkisstjórnin sér það að fara fram með þau ósannindi, að 8.000 milljarða hækkun á sköttum á eina atvinnugrein á hverju ári að lágmarki hafi engin áhrif á samkeppnishæfni, á möguleika til fjárfestinga, til nýsköpunar og engin áhrif á byggðir, það er ekki svo gott. Þannig að aftur fara ekki saman hljóð og mynd. Menn tala um mikilvægi þess að við göngum þannig fram að við aukum verðmætasköpun en það er samt sem áður ekki raunin þegar kemur að framkvæmdum. Hótanir um aukna skattheimtu á aðrar atvinnugreinar eins og ferðaþjónustu hafa líka sín áhrif en það er, eins og komið hefur fram, óútfært eins og flest í þessu.

Við erum svo búin samþykkja útgjöld til ýmissa þátta en það er lítið gert af því að meta þau í áætluninni. Eitt af því sem ríkisstjórnin eða stjórnarmeirihlutinn hefur sagt og kom fram í nefndaráliti held ég hv. efnahags- og viðskiptanefndar er að það á að halda áfram að vera með jöfnunarframlög til lífeyrissjóða, jöfnunarframlög örorku, en það er ekki gert ráð fyrir því hér. Þetta eru bara 3–4 milljarðar á ári.

Aðeins út af varnarmálum. Ég vil vekja athygli ykkar á því, og mér finnst einhvern veginn að menn hafi ekki alveg áttað sig á því, að samkvæmt stjórnarmeirihlutanum ætlum við að fara í 77 milljarða útgjaldaaukningu á ári. Það er markmiðið, að bæta við 77 milljörðum. Þeir eiga ekki að koma allir 77 á næsta ári en við ætlum að fara upp í 77 milljarða. Oft þegar við tölum um þessi mál þá nefnum við Landhelgisgæsluna. Hver eru heildarframlögin til Landhelgisgæslunnar? Þau eru 7,5 milljarðar. Hvað er mikið sett í varnarmálin núna bara þegar allt er tekið, og þar er Úkraína 2,1 milljarður? Það eru innan við 7 milljarðar. Þannig að við erum að tala um tíföldun. Jafnvel þó að við gerðum þetta bara línulega fram til 2035 þá eru þetta 6, 7 milljarðar á hverju einasta ári, viðbótin. Það er ekkert um þetta í þessari áætlun, ekki neitt. Það breytir engu þó að þessi breyting hafi verið gerð sem kölluð er stöðugleikaregla en er einhvers konar veik útgjaldaregla, sem fjármálaráð benti á að er öðruvísi en sambærilegar reglur í öðrum löndum vegna þess að það er svo margt fyrir utan núna. Reglan gerir ráð fyrir að það megi bara auka útgjöldin um 2% á ári — að vísu með hugtaki sem við finnum hvergi annars staðar, svokölluð raunútgjöld — þannig að þetta er mjög vítt, en það eru 2%. Fjármálaráð benti á að ef menn ætluðu að vera sjálfum sér samkvæmir ætti aukningin bara að vera 1,6%. En síðan bæta menn í og taka öll varnartengdu útgjöldin út fyrir sviga með þeim rökum að þannig ætla þau ríki að gera það sem ætla að fara í 5,3%. Þá verður að hafa í huga, virðulegi forseti, að þau hafa verið að setja 1,5–2,5%, jafnvel meira, og eru með það inni í reglunni þannig að þeir eru að tala um viðbótina. Að auki vek ég athygli á því, og auðvitað vitum við ekkert um þetta, við höfum ekkert rætt þetta, hvorki í hv. þingnefnd né í þingsal, að mér heyrist að menn ætli bara að setja allt milli himins og jarðar sem varnartengd útgjöld, þannig að þetta eru bara almenn útgjöld. Ég held að þótt það sé hægt að nefna mjög margt þá sé það ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann hjá fólki þegar það hugsar um varnartengd útgjöld. Þú breytir því ekki að þú verður að hafa einhverja tengingu við öryggis- og varnarmálin.

Í þessari áætlun sem við erum að ræða hér 3. júlí — og það kemur til, virðulegur forseti, vegna þess að hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar komu með tillögu og eru búnir að vekja athygli á því að við verðum að fara að ræða þetta. Það er ekki vegna þess að hæstv. ríkisstjórn er að vanda sig. Það er ekki vegna þess að hæstv. ríkisstjórn er að reyna að fara eftir lögunum eða reyna einhvern veginn að bjarga sér. Það er vegna þess að stjórnarandstaðan segir: Við verðum að ræða þetta, þið verðið að fara eftir einhverju sem snýr að þessum lögum. En í þessari áætlun er gríðarlega mikið af veikleikum. Hér verður ekki farið í alla þá upptalningu en það er t.d. það að ætla að ná niður kostnaði, og vonandi er það hægt án þess að það komi niður á þjónustunni, í framhaldsskólum þegar við erum með metárganga þar inni, stærstu árganga Íslandssögunnar sem eru komnir á þann aldur, og í háskólamálunum. Orkumálin eru bara tekin hressilega niður. Nú er ríkisstjórnin að taka við góðu búi þar, sameinaðar stofnanir, rammar sem eru tilbúnir, en þeir ætla að taka það sem er í nýtingarflokki þar, bestu orkukostina, og setja í bið. Svo ætla þeir að taka hressilega niður, bæði í fjárauka og fjármálaáætlun, framlög til orkumála. Það gerir það að verkum að þeir fjármunir sem menn ætluðu að setja í t.d. jarðvarmann — sem ekki bara eykur lífsgæði okkar Íslendinga og í þeim byggðum sem búa ekki við það heldur er það líka fljótlegasta leiðin ásamt smávatnsaflsvirkjunum og nokkrum fleiri þáttum til að sjá til þess að við fáum orku, vegna þess að núna eru þau svæði sem við vildum gjarnan að væru með jarðvarma með rafkynta búsetu. Heilbrigðismálin eru svo sannarlega dæmi líka og af mörgu er að taka þegar kemur að innviðunum. Þá er ekki minnst neitt á Laugardalsvöllinn en við erum eina þjóðin fyrir utan Úkraínu í Evrópu sem getur ekki spilað á heimavelli þegar kemur að þeirri íþrótt sem er vinsælust á Íslandi.

Virðulegi forseti. Síðan eru það afkomutölurnar. Hér var komið með mikla flugeldasýningu um að nú væri loksins komin ríkisstjórn sem gæti eitthvað og hún ætlaði sko að skila hallalausum fjárlögum 2027. Það er farið. Það verður halli 2027. 2028, hver skyldi nú afgangurinn verða? Miðað við þessa áætlun er gert ráð fyrir 2,9 milljörðum, heilum, af 1.600 milljörðum. 2029, hvar ætlum við þá að vera? Það er 9,1 milljarður, hvorki meira né minna. 2030 erum við komin í 20,8, hvorki meira né minna. Þetta er ekki mikill metnaður. En ég vek athygli á því, eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson benti á, að bak við þessar forsendur er hagræðingarkrafa upp á 107 milljarða sem er fullkomlega óútfærð. Í meðförum nefndarinnar sagði hvert einasta ráðuneyti sem kom fyrir nefndina að það ætti algerlega eftir að útfæra þetta. Ókei, látum það liggja milli hluta. Við vorum að ræða varnarmálin, 77 miljarðar á ári, ekki allt í einu en það hljóta að vera einhverjir milljarðar á hverju ári. Nema menn ætli að setja allt saman 2035 og bara 0 þangað til, sem ég ætla ekki að nokkur ætli sér að gera. Hvað þýðir það? Það þýðir að öllu óbreyttu — og ég er ekki að tala núna um jöfnunarframlagið sem er 3 til 4 milljarðar á ári og það bara eitt og sér tekur 2028 en bæði 2029 og 2030 svo sannarlega hverfa þegar menn fara í framlög til varnarmála, fyrir utan ýmsan kostnað sem augljós er og er búið að tilkynna, búið að samþykkja eða menn ætla sér að samþykkja, og mun taka þennan afgang.

Þetta eru ekki bara lausatök, virðulegi forseti. Þetta er bara ótrúlegt virðingarleysi gagnvart því mikilvæga verkefni sem hæstv. ríkisstjórn stendur frammi fyrir. Mér finnst stundum að hæstv. ríkisstjórn líti þannig á það að þau séu meira að reka skólafélag en þjóðfélag. Allar ríkisstjórnir sem hafa komið fram til þessa hafa litið svo á að mikilvægasta verkefnið sé ríkisfjármálin, vegna þess að ef þau eru ekki í lagi þá hefur það áhrif alls staðar. Það er óskiljanlegt, og hér hafa engin svör komið fram til þessa í umræðunni, af hverju hæstv. ríkisstjórn lítur á lög um opinber fjármál, lítur á fjármálastefnu, lítur á fjármálaáætlun sem eitthvert minni háttar mál, eitthvað svona: Já, við ætlum að ræða þetta í þrjá tíma í dag af því að stjórnarandstaðan er með svo mikið suð út af þessu. Við erum ekki hér að ræða þetta vegna þess að þetta er forgangsmál hjá ríkisstjórninni. Við erum ekki að því. Þetta er vegna þess ríkisstjórnin allt í einu áttaði sig: Heyrðu, við þurfum kannski að gera þetta, kannski er eitthvað til í þessu hjá stjórnarandstöðunni sem hún er alltaf að tuða yfir.

Af öllu því alvarlega sem ríkisstjórnin hefur gert og veldur manni áhyggjum á þessum stutta líftíma hennar er enginn vafi á því að þetta er það alvarlegasta. Það er ömurlegt að menn séu búnir að brjóta blað í þessari sögu þingsins, þessari tíu ára sögu laga um opinber fjármál, á þann hátt sem við horfum upp á í dag og erum búin að horfa upp á á síðustu mánuðum.

Fyrsti hæstv. fjármálaráðherra sem flutti fjármálastefnu og fjármálaáætlun var Benedikt Jóhannesson, þáverandi formaður Viðreisnar. Ég hvet ykkur, virðulegi forseti, hv. þingmenn og þá sem fylgjast með þessari umræðu að skoða þá umræðu, skoða hvað þáverandi hæstv. fjármálaráðherra sagði. Sá hæstv. fjármálaráðherra tók þetta hlutverk sitt mjög alvarlega og sagði, ef ég man rétt, að þetta væri ekki pólitík heldur væri þetta tæki fyrir okkur til að bæta það sem við vildum bæta, umgjörðina um opinber fjármál, sem allir eru sammála um, að ég hélt, að ætti að vera útgangspunktur í okkar vinnu af augljósum ástæðum. Það eru engin dæmi þess að þjóðfélagi hafi vegnað vel og verið með lausagang í opinberum fjármálum. Engin dæmi. Það mun enginn geta sagt: Hér í mannkynssögunni var eitt þjóðfélag sem var ekkert mikið að hugsa um umgjörð opinberra fjármála og það gekk alveg ótrúlega vel hjá þeim. Það eru engin slík dæmi. Þess vegna lögðu menn í þessa gríðarlega miklu vinnu, fengu alþjóðastofnanir að, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, OECD, mikið samráð, samtal við löndin í kringum okkur, sérstaklega Norðurlöndin. Það var gert þá sem var almennt ekki gert, þáverandi hv. fjárlaganefnd lagði land undir fót og átti fundi með kollegum sínum á Norðurlöndunum. Þar var sérstaklega farið yfir það hver reynsla þeirra væri af sambærilegu verklagi, því að við vorum á eftir þeim hvað þetta varðaði, hvað við þyrftum að varast og hverjar áskoranirnar væru.

Það eru áskoranir og það er alveg algjörlega kominn tími á það, og mjög góður tímapunktur núna, að endurskoða þessi lög. Það er í mínum huga augljóst að það er mörgu ábótavant þegar kemur að framkvæmdinni. Við rekjum þetta ágætlega í nefndarálitinu. En það sem er sorglegt, virðulegi forseti, er hvað okkur hefur farið aftur núna með tilkomu þessarar hæstv. ríkisstjórnar. Það er líka sorglegt að viðbrögðin eru alltaf á sama veg, öllum fyrirspurnum eins og þessum er svarað af hroka í stað þess að menn bara viðurkenni það að hér voru gerð mistök og menn vilji kannski bæta úr því.

Við sitjum uppi með, virðulegi forseti, áætlun sem kurteislega má segja að sé úrelt. En aðalatriðið er þetta, og það hefur komið fram í þessari stuttu umræðu sem við höfum átt fram til þessa, að forsendur eru brostnar, því miður. (Forseti hringir.) Við erum í snúinni stöðu af þeirri ástæðu en það er allt saman á ábyrgð hæstv. ríkisstjórnar.