fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Hv. þingmaður hefur farið mikinn um ásakanir um lögbrot bæði í ræðum og undir liðnum fundarstjórn forseta. Í 4. gr. laga um opinber fjármál stendur að fjármálastefna skuli lögð fram svo fljótt sem auðið er. Ef ég skil hv. þingmann rétt þá er hann að vísa í þá grein og sömuleiðis að fjármálaáætlun skuli lögð fram fyrir 1. apríl. Ef ég skil hv. þingmann rétt, að hann sé að vísa í þessa tilteknu grein ótt og títt um meint lögbrot ríkisstjórnarinnar, hvaða viðmið á hann þá við? Bæði með dagsetningu, eru það þrjár vikur frá því að ný ríkisstjórn tekur við, eru það fjórar vikur, mánuður? Ég spyr í ljósi þess að árið 2016, 29. apríl, þegar þingmaður var í stjórnarmeirihluta, var fjármálastefna og fjármálaáætlun lögð fram á sama tíma.