156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:24]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ekki bara sá sem hér stendur sem hefur vakið athygli á þessu. Fjármálaráð vakti athygli á þessu og af einhverri ástæðu þá sagði hæstv. fjármálaráðherra núverandi ríkisstjórnar að hann ætlaði að koma fram í febrúar með fjármálastefnuna. Ég er að vísa í það að það var ekki gert og ég er að vísa í það eins og fjármálaráð. Ég er líka að vísa í að það á að klára fjármálastefnuna, það á að ræða hana, það á að samþykkja hana og á grunni hennar á að semja, flytja og samþykkja fjármálaáætlun. Á grunni fjármálaáætlunar á að semja og samþykkja fjárlög. Hv. þingmaður er formaður hv. fjárlaganefndar. Hv. þingmaður veit að þetta eru athugasemdir fjármálaráðs. Hv. þingmaður veit að ráðherra í hæstv. ríkisstjórn ætlaði að koma með þetta í febrúar en ákvað að gera það ekki.