fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Eitt er að gera athugasemdir, annað að saka fólk um lögbrot. Það eru tveir ólíkir hlutir, tveir mjög ólíkir hlutir. Það er grafalvarlegt, frú forseti, að hér komi hv. þingmaður upp og saki fólk um að brjóta lög. Það er grafalvarlegt. Athugasemdir fjármálaráðs snerust ekki um ásakanir um lögbrot. Það hefur einungis komið úr munni hv. þingmanns. Orðum fylgja ábyrgð. Í ljósi þess að 29. apríl 2016 lagði þáverandi ríkisstjórn, sem hv. þingmaður var hluti af, fram fjármálastefnu og fjármálaáætlun, 29. apríl 2016 þegar lög segja 1. apríl, þá velti ég fyrir mér á hvaða vegferð hv. þingmaður er.