fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Fjármálaráð benti á hið augljósa, að það er ekki verið að fara að lögum um opinber fjármál. Heldur hv. þingmaður að hann komist upp með þetta? Heldur hv. þingmaður að fólk geti ekki lesið lögin um opinber fjármál? Heldur hv. þingmaður það í fullri alvöru að það muni fara fram hjá fólki sem les lögin um opinber fjármál að það á að koma með fjármálastefnu, eins og hv. þingmaður vísar til, eins fljótt og auðið er, ræða hana, samþykkja hana og á grunni fjármálastefnunnar á ríkisstjórnin að koma með fjármálaáætlun sem á að ræða og samþykkja? Hv. þingmanni getur fundist þetta ofsalega sárt. Þannig er þetta. Hæstv. ríkisstjórn sagði: Við ætlum að koma með fjármálastefnu í febrúar. Tók við í desember. Ef hún hefði komið í lok febrúar þá hefðum við haft rúma tvo mánuði til að gera þetta. Það var bara ekki gert og hv. þingmaður þarf bara að lifa með því. (Gripið fram í.) Að fara ekki að lögum? Já, það er lögbrot.
(Forseti (ÞSv): Ekki samtöl.)