fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir fyrirtaksræðu, fór víða og kom inn á mjög marga punkta sem væri áhugavert að ræða og eitthvað mun ég fara betur inn á í minni ræðu hér á eftir. Það sem mig langar að fá að eiga orðastað við hv. þingmann um er skuldaviðmiðið. Ef ég man rétt, þegar fjármálaáætlunin var lögð fram, þá vorum við að tala um, held ég, skuldaviðmið 32% 2026 og koma okkur niður í um 30% árið 2030, sem er það markmið sem við höfum verið að vinna með. Nú er komin breytingartillaga þar sem við erum í 45% 2026 og 41% 2030. Man hv. þingmaður, sem er með mér í fjárlaganefnd, eftir mikilli umræðu um þetta í nefndinni?