fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður segir alveg kurteislega að þetta er nokkuð sem ég fjallaði lítið eða ekkert um í ræðu minni. En mér til vorkunnar þá er fjármálaáætlun svo stórt mál að við þurfum mikinn tíma til að ræða hana og ég treysti því að hv. þingmaður muni taka sérstaklega á þessu máli sem hann bendir réttilega á að er gríðarlega mikil breyting sem ekkert var rædd í nefndinni, ekki neitt. Öll mál þróast og með nýju fólki koma nýjar áherslur og annað slíkt en það er gríðarlega alvarlegt að við séum með ríkisstjórn í landinu, af því að ég er hættur að skamma forystumenn hv. þingnefnda, þar sem línan er bara þessi hjá hæstv. ríkisstjórn: Ekki ræða mál í nefndum nema að algeru lágmarki. Hér erum við hvorki meira né minna að ræða fjármálaáætlun og fjármálastefnu sem hér áður (Forseti hringir.) tók gríðarlegan tíma, eðlilega, því að það er grunnurinn að þessu. Þannig að stutta svarið við spurningunni, virðulegi forseti, er: Nei, ég man ekki eftir þessari umræðu.