fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér að halda aðeins áfram á þessum slóðum og tek undir með hv. þingmanni, ég man ekki eftir þessari umræðu í nefndinni. Ég svo sem þykist vita hvernig þetta er fram komið en þessi breyting er bara af þeirri stærðargráðu að hún náttúrlega breytir miklu meira en skuldastöðunni. Hún breytir forsendum að svo miklu leyti að það er alveg með ólíkindum að þetta hafi einhvern veginn ekki fengið betri umfjöllun í nefndinni og hér í þingsal í þessari umræðu hingað til. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi einhverjar skýringar, hann fór nú svo sem aðeins inn á sínar vangaveltur um ástæður fyrir því en (Forseti hringir.) spurningin er kannski þessi: Hefur hv. þingmaður einhverjar haldbærar skýringar á því af hverju í ósköpunum við erum ekki að tala um þessa hluti? Þetta er alger forsendubreyting í áætluninni.