fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Hv. þingmaður spyr: Af hverju? Nú er það þannig í stjórnmálum að þá er fólk ekki sammála. Þannig á það að vera. Það væri hræðilegt ef allir væru sammála. En mér hefur fundist mál vera að þróast frekar á þann veg að menn séu alla vega að vinna hlutina þannig, og þá verður að gera það í hv. nefnd, að þróa umræðuhefðina þannig að við séum sammála um það hvað við séum ósammála um. En síðan eru svona mál sem allt þjóðfélagið veltur á því að skuldahlutfall er ekki bara tala á blaði. Það er ástæða fyrir því að við viljum hafa skuldirnar undir 30%. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson nefndi það ágætlega að við erum lítið efnahagskerfi og við höfum mikla sérstöðu af því að við erum eina þjóðin í heiminum sem er staðsett þar sem við erum staðsett og margar aðstæður þannig að það er mjög mikilvægt fyrir okkur, bara út frá þjóðaröryggi og efnahagslegri velferð, að við séum skuldlítil. Það geta alveg komið upp aðstæður. og stundum er það bara engum að kenna, að eitthvað kemur upp sem þurfi að takast á við, (Forseti hringir.) en menn þurfa þá að ræða það og horfast í augu við það og grípa til ráðstafana.