fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum ræðuna og taka undir andsvar formanns fjárlaganefndar, Ragnars Þórs Ingólfssonar, 5. þm. Reykv. n. Komið var á framfæri þremur punktum sem voru kannski ónákvæmir en í fyrsta lagi var velt upp þeirri spurningu hvort tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu væri ekki inni í forsendum fjármálaáætlunar. Það er sannarlega inni í áætluninni. Í öðru lagi var lýst áhyggjum yfir fjármögnun almennrar jarðhitaleitar. Hún hefur verið með 150 millj. kr. á ári á fjárlagalið undanfarin ár en það verður tvöfaldað samkvæmt áformum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þannig að þær áhyggjur þarf ekki að hafa. Ég undra mig líka á umræðunni um stöðugleikareglu og að útfærsla hennar komi fólki á óvart því að í apríl í fyrra kom út (Forseti hringir.) býsna góð greinargerð þar sem er velt upp mismunandi leiðum til þess að breyta fjármálareglum hins opinbera (Forseti hringir.) og þar kom stöðugleikareglan best út þannig að þetta á sér nú býsna mikinn aðdraganda.