fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það er enginn vafi á að það sem snýr að launavísitölunni er vanmetið. Varðandi jarðhitaleitina þá þekki ég það nú nokkuð, ég var nú ráðherrann sem beitti sér fyrir því að það yrði farið í jarðhitaleit í fyrsta skipti á þessari öld. Ég vek athygli á bls. 149 í fjármálaáætluninni en þar er sérstaklega tilgreint og sýnt fram á lækkunina sem er í orkumálunum. Sumpart er það sem kemur, kannski helmingurinn, út af lækkuninni í Orkusjóð en síðan er þetta fjármagn sem átti að nýta í m.a. jarðhitaleit og er lækkað, heildarlækkunin er um 5 milljarðar kr., en eins og ég segi, helmingurinn út af orkuskiptunum og hitt er út af orkutengdu verkefni. Við erum búin að ræða hina svokölluðu stöðugleikareglu, sem er náttúrlega ekki stöðugleikaregla, lítið hins vegar rætt það sem hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson kom inn á, sem er veiking á skuldareglu. En við getum rætt þetta áfram og niðurstaðan er alltaf hin sama. Við stöndum við þá gagnrýni sem við höfum haft frammi enda er hún á rökum reist.