156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þetta andsvar og endurtek einfaldlega að almenn framlög til jarðhitaleitar voru 150 millj. kr., verða 300 millj. kr., sem er tvöföldun. Þetta hef ég fengið staðfest beint frá núverandi ráðherra. Varðandi stöðugleikaregluna þá reyndist hún, við greiningu í skýrslu sem lagði í raun grunn að þessari umræðu og birt var í apríl í fyrra, koma best út gagnvart þeim markmiðum sem við erum að setja okkur. Auðvitað má ræða það fram og til baka en mér fannst það býsna vel rökstutt og þess vegna var það m.a. stefna Samfylkingarinnar í nýafstöðnum alþingiskosningum að taka upp stöðugleikaregluna. Það er stefna nýrrar ríkisstjórnar og það birtist núna í breytingum á lögum um opinber fjármál, í fjármálastefnu og fjármálaáætlun.