fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég hvet hv. þingmann bara til að kynna sér fjármálaáætlun. Á síðasta kjörtímabili settum við 1,5 milljarða í jarðhitaleit. Það kom fyrir nefndina áhættumat frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem menn höfðu miklar áhyggjur af því að það væri ekki verið að klára jarðhitaleitina á Reykjanesi. Það hefur ekki bara verið lækkað í fjármálaáætlun, ég biðst velvirðingar á því að hafa ekki tekið það fram áðan, það er líka í fjárauka sem menn eru að taka þessar fjárheimildir niður. Tölurnar tala sínu máli og hver og einn getur farið í þingskjöl, þetta er á bls. 149, kaflinn er á bls. 148–149 um orkumál, þó að hann sé nú snauður þá kemur þetta skýrt fram þar. Hv. þingmaður held ég að sé framsögumaður fjárauka þar sem þessar fjárheimildir eru teknar niður þannig að ég veit ekki, hv. þingmaður hefur verið eitthvað utan við sig þegar hann hefur verið að ganga frá þeim málum en hvet hann til að skoða þessar tölur. Síðan stöndum við allt það (Forseti hringir.) sem við höfum sagt varðandi stöðugleikaregluna og vísum m.a. í umsögn fjármálaráðs vegna þess.