156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:41]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, það eru akkúrat þessir þættir sem við ættum að vera að ræða í tengslum við fjármálaáætlun. Það er hræðilegur mælikvarði ef menn ætla bara að fjölga opinberum störfum í hlutfalli við fjölgun þjóðarinnar. Við hljótum að huga að því fyrst hvaða þjónustu við viljum veita og hvernig við getum gert það með hagkvæmustum hætti. Tækniþróunin ætti t.d. að hjálpa okkur mjög mikið. Menn tala mikið um gervigreind og gervigreindin er að hjálpa okkur og þar af leiðandi gera okkur auðveldara fyrir og þá þarf oft á tíðum færri starfsmenn þótt það sé mjög mikil eftirspurn eftir starfsfólki og erfitt að koma með einhverja tækniþróun í margt eins og umönnunarstörf og löggæslu og annað slíkt.

Síðan er eitt sem við höfum lítið rætt, sem ég held að við þurfum að ræða, og það eru afleiðingar af styttingu vinnuvikunnar. Það er augljóst að það var ekki hugsað alla leið. Skýrasta dæmið fengum við frá stofnunum, sérstaklega þeim stofnunum sem reiða sig á vaktavinnu. (Forseti hringir.) Þetta eru akkúrat málin sem við ættum að ræða og við þurfum að hafa í huga sem aldrei fyrr á þeim viðsjárverðu tímum sem við horfum fram á í opinberum fjármálum.