156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:42]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið og ég er fegin að við erum sammála og ég er líka sammála þessari nálgun varðandi styttingu vinnuvikunnar, ef ég skil hv. þingmann rétt, að við þurfum einhvern veginn að vinda ofan af neikvæðum áhrifum hennar. Ég hef fulla trú á að hv. þingmenn, alla vega minni hlutans, taki þetta föstum tökum varðandi fjölgun opinberra starfa.

En mig langaði í seinni spurningu að spyrja um fjármálaráð. Það eru auðvitað á margan hátt kostir við fjármálaráðið en ég hef áhyggjur af því að með auknum heimildum til fjármálaráðs þá muni vald Alþingis, fjárlagavaldið sem á heima hérna á Alþingi — það er verið að taka mjög mikið vald af Alþingi. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort það valdi honum ekki áhyggjum.