156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:43]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir og ég ætla að staldra við spurninguna um fjármálaráðið. Mér hefur kannski yfirsést eitthvað en ég lít svo á að fjármálaráð sé fyrst og fremst með það hlutverk að greina það sem við erum að gera og koma með sjónarmið. Við megum ekki gleyma því að valdið er alltaf hjá þinginu, það er hjá þjóðkjörnum fulltrúum, en það hefur stundum borið á því að menn reyni að ýta ábyrgðinni annað í stað þess bara að nota sjónarmið eins og í þessu tilfelli fjármálaráðs, sem mér hefur fundist vera góð reynsla af. Það kemur með sín sjónarmið, rökstudd sjónarmið, fólk sem er með sérfræðiþekkingu á viðkomandi sviðum og ýmsum sviðum sem nýtast vel í þessari vinnu. En við megum passa okkur á því alltaf að vera ekki að ýta ábyrgðinni frá okkur. Það erum við þjóðkjörnir fulltrúar sem erum með ábyrgðina. Það er ekki hægt að kenna fjármálaráði um að við séum að ræða þessa hluti hér núna og það sé ekki farið að lögum um opinber fjármál. Það er algerlega á ábyrgð hæstv. ríkisstjórnar.