156. löggjafarþing — 78. fundur,  3. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:45]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 í síðari umræðu hér á þinginu. Ég vil bara byrja á að þakka fyrir að þessi umræða er komin á dagskrá. Þetta er mál sem við mjög margir þingmenn stjórnarminnihlutans höfum verið að kalla eftir síðustu daga að væri tekið hér til umræðu, enda er um algjört grundvallarplagg að ræða, virðulegur forseti, og við þurfum að eyða töluverðum tíma í að rýna í gegnum þetta og því fagna ég því að málið skuli vera komið á dagskrá þingsins í dag. Þótt umræðan sé nú stutt í dag þá veit ég að við eigum eftir að ræða þetta meira í þinginu og vonast bara til þess að okkur muni gefast tími til að ræða þetta almennilega, bæði okkur sem erum í nefndinni og eins öðrum sem ég veit að hafa mikinn áhuga á þessu máli. Hér er um að ræða algjört grundvallarplagg sem tekur í raun og veru á öllum þáttum fjárlaga og fjármögnunar ríkisins og ekki bara í eitt ár eins og fjárlögin heldur til ársins 2030 þannig að það er alveg ljóst að hér er stefnumarkandi plagg sett fram af hálfu ríkisstjórnarinnar og mjög mikilvægt að við fáum og gefum okkur tíma til að fara yfir.

Ég vil líka aðeins rifja upp hvernig umræðan var hér í fyrri umræðu þessa máls þegar sá sem hér stendur stóð á nákvæmlega sama stað og spurði hæstv. fjármálaráðherra hvort hann teldi að þessi framlagning fjármálaáætlunar stæðist lög um opinber fjármál. Svarið var skýrt. Það var bara ein setning ef ég man rétt, það var bara: Já. Við hv. þingmenn minni hlutans í fjárlaganefnd fórum að benda á það þennan dag að það vantaði nú töluvert í þessa áætlun þannig að hún uppfyllti lög um opinber fjármál. Sama svarið gall við fram eftir degi þangað til, hvað? Jú, menn áttuðu sig á því að það var nú kannski eitthvað í málflutningi minni hlutans sem var vert að skoða. Og hvað hefur síðan komið í ljós, virðulegur forseti? Það hefur bara komið í ljós að það sem við bentum á var rétt. Þau markmið og þeir mælikvarðar sem eiga að vera inni í áætluninni samkvæmt lögum um opinber fjármál eru ekki þar. Okkur var tjáð af hæstv. fjármálaráðherra að það stæði til að laga þetta allt saman eftir að það var í raun og veru viðurkennt að það vantaði. Við myndum fá þessar upplýsingar á einhverri síðu hjá fjármálaráðuneytinu þar sem við gætum með gagnvirkum hætti áttað okkur betur á því hvað væri á bak við þessar tölur allar saman í þessari áætlun.

Það er skemmst frá því að segja að þetta er ekki enn þá komið, þessar upplýsingar sem við kölluðum eftir í fyrri umræðu og endaði þannig að minni hlutinn treysti sér ekki til að taka þátt í umræðum við fagráðherrana vegna skorts á upplýsingum í fjármálaáætlun. Við höfum ekki enn þá fengið þessar upplýsingar. Þetta er ekki enn þá komið til okkar og við erum hér í síðari umræðu.

Hér hefur verið umræða um það hvort hv. þingmenn eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sem talaði hér um að það væri verið að brjóta lög um opinber fjármál — menn sögðu: Ertu í alvörunni að segja að við séum að brjóta lög? Mjög hissa og undrandi á því. Fjármálaráð segir þetta í sinni umsögn. Ef það er ekki verið að fara eftir lögunum, virðulegur forseti, þá hlýtur að vera verið að brjóta þau. Svo einfalt er það. Mér datt í hug þegar ég sat hér áðan og hlustaði á þessa umræðu, þessa hártogun um þessa orðanotkun, að ég í mínu fyrra lífi starfaði sem lögregluþjónn og ef ég hefði tekið einhvern fyrir of hraðan akstur og stoppað hann og sagt: Jæja, góði minn, þú ert hérna á 110 en mátt bara vera á 90 — ég hef fengið ýmis svör og ýmsar afsakanir en aldrei neitt í líkingu við þetta: Já, fyrirgefðu, lögregluþjónn, en ég bara skil lögin öðruvísi en þú, [Hlátur í þingsal.] ég er bara ekki sammála þessari túlkun á þessari 90 reglu, fyrirgefðu, ég met það ekki þannig að ég sé að brjóta umferðarlögin, ég túlka þetta öðruvísi og eigðu góðan dag. Eða þá í sama tilfelli að viðkomandi segi: Ja, ég veit að frændi minn gerði þetta 2016, þá hlýt ég að mega þetta núna. Lögin virka ekki þannig. Þetta er ekki tekið gilt. En allt í lagi, virðulegur forseti.

Virðulegur forseti. Það er ákveðin röðun í þessu og það er það sem við höfum líka verið að benda á að er ekki lagi. Það er ástæða fyrir þessu öllu saman. Það er ástæða fyrir því að við setjum fjármálastefnu fram, setjum síðan fjármálaáætlun og á því byggjum við fjárlög. Þetta er grunnstefið í lögum um opinber fjármál. Ég ætla svo sem ekki að eyða löngum tíma í þetta vegna þess að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson fór afskaplega vel yfir þetta í sinni ræðu. Þetta er alveg skýrt í lögunum hvernig við eigum að gera þetta. Og þó að það hafi einhvern tímann verið misbrestur á því í fortíðinni þá breytir það ekki þessu, á engan hátt. Sömuleiðis, virðulegu forseti, er manni svolítið spurn: Hvernig ætla menn í alvörunni að gera þetta? Hvernig ætlar hæstv. ríkisstjórn að komast í gegnum þetta? Það er algerlega óskiljanlegt. Ég er ekki búinn að vera lengi starfandi sem alþingismaður en alla vega á þeim tíma sem ég hef verið hérna og sem fyrrverandi formaður fjárlaganefndar þá var maður aðeins að glugga í það hvernig þetta hefði verið gert í fortíðinni en maður sér ekki annað en að sú áætlun sem var lögð hér fram allt of seint en samt ekki fyrir of löngu síðan, standist ekki í dag. Þær eru orðnar svo miklar forsendubreytingarnar frá því að fjármálaáætlun var lögð fram þar til við stöndum hér í dag að forsendurnar virðast vera farnar. Þær eru alla vega gjörbreyttar.

Bara það að það sé einhvern veginn skautað fram hjá þessari 1,5% hækkun til varnarmála upp á 77 milljarða í fjármálaáætlun finnst mér með ólíkindum. Ef ég væri formaður fjárlaganefndar væri ég nú bara ekkert rólegur að leggja slíkt plagg fram vitandi það að það vantar inn í áætlunina tugi milljarða á tímabilinu eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson fór yfir áðan. Ég hef ekki tilfinningu fyrir því að menn ætli að setja þetta allt inn síðasta árið. Menn hljóta að ætla að setja þetta inn hægt og bítandi og þá eru þetta 6–7 milljarðar á ári, aukning, þar til við náum þessu markmiði um 77 milljarða sem getur orðið miklu hærri tala ef þjóðarframleiðslan eykst, sem við skulum svo sannarlega vona að hún geri.

Það er svolítið ankannalegt að þessi tala sé inni vegna þess að hún er svo stór. Við getum síðan rætt um það hvort jöfnunarframlagið varðandi lífeyrisréttindin og jöfnun þeirra, hvort tekjutengingin við launavísitölu og verðlagsvísitölu eigi ekki að vera inni. Við vitum reyndar kannski ekki alveg hver sú tala er og verður í framtíðinni. En gott og vel, þetta er ekki inni, það vantar inn í þetta.

Hv. framsögumaður málsins, Dagur B. Eggertsson, fór alveg ágætlega yfir það og við vorum sammála um það hér áðan í andsvörum að auðvitað er ytra umhverfi ekki að vinna með okkur í dag. Við gerum okkur alveg grein fyrir því. Við erum á mjög viðsjárverðum tímum varðandi það sem er að gerast í Miðausturlöndum, áhrifin sem það getur t.d. haft á olíuverð, ég tala nú ekki um það ef sú spenna eykst á komandi misserum. Það er tollastríðið og ég gæti lengi haldið áfram, stríðið í Úkraínu. Það eru þarna ytri þættir sem við höfum áhyggjur af og höfum bent á og alveg eins og fjármálaráð benti á þá er hér um tvær sviðsmyndir að ræða. Það er bjartsýna sviðsmyndin og mjög bjartsýna. Það væri nú mjög fróðlegt að fá að sjá hinar tvær sem hljóta þá að vera svartsýn og mjög svartsýn og kannski eina bara svona meðal sem væri ágætt að hafa á bak við eyrað í þessari umræðu allri saman.

Síðan langar mig að halda áfram með það sem ég var að ræða hér við hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson áðan í andsvörum varðandi skuldirnar. Við höfum verið að miða við það í gegnum tíðina að ná skuldaviðmiði niður í 30%. Það er sú tala sem við höfum verið að miða okkur við og er miðað við í þessum svona þróuðum löndum í kringum okkur, það sé gott og ákveðið heilsufarsvottorð fyrir stöðu ríkissjóðs ef við erum í kringum 30% og við höfum nú verið það, virðulegur forseti. Reyndar fór skuldahlutfallið upp í kringum Covid og lækkaði síðan ekki nógu hratt þegar við fengum Grindavíkurverkefnin í fangið. En engu að síður hefur skuldahlutfallið verið í kringum 32%, ef ég man rétt, núna síðast. Það er mjög áhugavert. Ef við skoðum aðeins þá tölu, 32%, þá var það þannig, ef ég man umræðuna rétt í upphafi Covid-faraldursins, að þá voru áætlanir ríkisins að gera ráð fyrir því að skuldahlutfall ríkissjóðs gæti farið upp í allt að 50%. En við náðum að halda okkur á nokkuð ásættanlegum stað miðað við það áfall sem dundi yfir okkur þannig að við höfum haldið okkur í um 32%. Nú erum við hins vegar að sjá að skuldaviðmið laga um opinber fjármál sem prósenta af vergri landsframleiðslu er að fara í 45% árið 2026 og 41% 2030. Það er engin áætlun í þessu plaggi um það hvernig á að ná skuldunum niður. Það er búið að taka þá reglu úr sambandi, virðulegur forseti. Það er búið að taka skuldalækkunarregluna úr sambandi. Það eina sem kemur inn er það að ef skuldirnar fara umfram þetta viðmið þá þarf að gera greinargerð. Það á að skila greinargerð um það. Það er engin áætlun, hún er farin og það á að skila greinargerð um stöðuna.

Þetta er náttúrlega grafalvarlegt mál, virðulegur forseti, og þessi stöðugleikaregla er alls ekki nægilega sterk og bara mjög veik útgjaldaregla í besta falli. Við getum orðað þetta öðruvísi: Ef stöðugleikareglan hefði ekki verið samþykkt þá væri þetta ekki hægt. Maður spyr sig: Getur það verið ástæðan fyrir því að það lá svo á að koma stöðugleikareglunni í gegnum þingið? Getur það verið þannig, að menn hafi ekki getað klárað þessa fjármálaáætlun öðruvísi en að stöðugleikareglan yrði samþykkt vegna þess að annars hefði þetta ekki staðist lög um opinber fjármál? Sem hún gerir reyndar ekki, en ekki út af þessu. Þetta er mjög áhugavert og, enn og aftur, hefur þetta ekki fengið nægilega umfjöllun að að mínu mati.

Skuldirnar eru að hækka á tímabilinu, mér sýnist að það sé hækkun um 300 milljarða, þannig að allt tal um lækkun skulda, raunlækkun skulda, er ekki rétt. Þær lækka sem hlutfall af landsframleiðslu en það er ekki verið að borga niður skuldir að raunvirði, þær hækka. Þær hækka um 300 milljarða á tímabilinu.

Svo í lokin, af því að tíminn flýgur, virðulegur forseti, þá er náttúrlega ekki annað hægt en að eyða smátíma hér í 107 milljarða kr. hagræðingartillögur stjórnarinnar. Ég bara vona svo innilega að það muni blessast og ganga vel vegna þess að forsendur áætlunarinnar ganga út á að það geri það, ég vona innilega að þær muni líta dagsins ljós. En eins og staðan er núna og eins og áætlunin er lögð fram þá eru þessar tillögur algerlega óútfærðar. Ég man eftir umræðu hér í þessum sal um gagnrýni á óútfærðar aðhaldstillögur, en hér koma menn og segja: Jú, þetta er allt saman útfært af því þetta er inni í römmunum hjá ráðherrunum, við erum búin að deila þessu niður á ráðuneytin hvernig þetta skiptist og það er útfærslan. En það er ekki útfærsla, virðulegur forseti. Það er ekki útfærsla. Það er ákveðin útfærsla, jú, en segir okkur ekkert um það raunverulega hvernig menn ætla að ná þessu fram. Við höfum verið að spyrja um þetta í fjárlaganefnd. Við erum búin að spyrja fagráðherra, hvern á fætur öðrum: Hvernig á að ná þessari hagræðingu fram? Hvernig á að ná þessu fram? Hvar sérð þú fyrir þér að þú getir sameinað stofnanir eða skorið niður? Og svarið hefur alltaf verið það sama: Þetta er óútfært, þetta er á síðari hluta áætlunarinnar, við eigum eftir að taka þessa umræðu.

Við erum hér með mjög veikan rekstrarafgang á tímabili áætlunarinnar, allt frá 6 milljörðum upp í 26, ef ég man þetta rétt, samkvæmt nefndarálitinu, með óútfærða 107 milljarða kr. hagræðingu og 77 milljarða í varnarmál. (Forseti hringir.) Eru engin viðvörunarljós að kvikna hjá neinum nema þeim sem hér stendur og minni hlutanum?